Til að geta orðið Landvættur þarf viðkomandi að afreka eftirfarandi á innan við 12 mánuðum:

Vesturhluti: Fossavatnsgangan, 50 km eða NæturFossavatnið lengri vegalengd, skíðaganga á Ísafirði.

Norðurhluti: Þorvaldsdalsskokkið um 25 km óbyggðahlaup eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði.

Austurhluti: Tour de Ormurinn, amk 68km vegalengd í hjólreiðakeppni umhverfis Löginn á austurlandi..

Suðurhluti: Opna Íslandsmótið í Víðavatnssundi, amk 3 km vegalengd í sjósundi í Nauthólsvík Reykjavík.