Stofnað hefur verið Fjölþrautafélagið Landvættir. Tilgangur félagsins er að safna félögum. Til að geta orðið Landvættur þarf viðkomandi að afreka eftirfarandi á innan við 12 mánuðum:

Vesturhluti: Fossavatnsgangan, 50 km eða NæturFossavatnið lengri vegalengd, skíðaganga á Ísafirði. 

Norðurhluti: Jökulsárhlaupið, 32.7 km hlaup frá Dettifossi til Ásbyrgis eða Þorvaldsdalsskokkið um 25 km óbyggðahlaup   eftir endilöngum Þorvaldsdal í Eyjafirði.

Austurhluti: Urriðavatnssundið, 2.5 km sund í Urriðavatni nálægt Fellabæ

Suðurhluti: Blue Lagoon Challenge, 60 km hjólreiðar frá Hafnarfirði.

Söfnun félaga hófst 2013.

Formaður félagsins er Ingvar Þóroddsson, Reynilundi 5 Akureyri,ingvarthi@simnet.is
Meðstjórnendur eru Daníel Jakobsson og Þóroddur Ingvarsson